Suðurlandsmót í tvímenning -- síungir Suðurlandsmeistarar

sunnudagur, 24. mars 2013

Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið á heimavelli Bridgefélags Rangæinga að Heimalandi undir V-Eyjafjöllum, laugardaginn 23. mars.  18 pör mættu til leiks og fóru leikar svo að Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson urðu Suðurlandsmeistarar með 59,7% skor.  "Þetta var bara létt og ágreiningslítið hjá okkur Þórði" sagði Gísli kátur og fékk sér duglega í nefið um leið og hann bauð Bjössa Snorra í nefið en Björn og Guðmundur Þ. Gunnarsson urðu einmitt í 2. sæti með 57,0% skor.   Helgi Hermannsson og Brynjólfur Gestsson urðu svo í 3. sæti með 55,6% skor en hvorugur þeirra tekur í nefið.

Lokastöðu og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar