Rangæingar -- Bankastjórinn lagði inn á bókina

miðvikudagur, 20. mars 2013

Þann 19. mars var leikin önnur umferð í Aðaltvímenning félagsins.    Bankastjórinn og slátrarinn lögðu gott skor inn á mótsbókina sína þegar þeir lönduðu harðsóttum sigri með 60,1% skori.   Næstir á eftir þeim urðu Torfi trillukarl og hinn glerharði Diddi með 58,6% skor.    Eyjapeyjarnir, Bjössi og Eyji, eru í myljandi stuði þessa dagana og nældu sér í 3ja sætið með 56,5% skori.

Eyjapeyjarnir leiða nú mótið með 114% uppsafnað skor en Diddi og Torfi eru á hælum þeirra með 113,5% uppsafnað.

 Úrslit kvöldsins og spilin má sjá hér en staðan eftir tvö kvöld af fimm sést hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar