Rangæingar -- Jólamót -- Góð þátttaka en pláss fyrir 1-2 pör til viðbótar

föstudagur, 28. desember 2012

Laugardaginn 29. desember heldur Bridgefélag Rangæinga sitt árlega jólamót.  Mótið hefst kl. 12,00 og spilað verður í golfskálanum á Strönd, mitt á milli Hellu og Hvolsvallar.   Sennilega fallegasti spilastaður landsins, hvað útsýni varðar.   Þátttaka tilkynnist til Bergs Pálssonar, í síma 894 0491 eða á netfangið: frami@simnet.is.   Nú eru 20 pör skráð til leiks en enn er pláss fyrir 1-2 pör. 

Lista yfir þá sem þegar hafa skráð sig til leiks má sjá hér

Eins og í öllum alvöru mótum hefur verið skipuð dómnefnd, ef upp kunna að koma ágreiningsmál.  Sama nefnd mun annast verkið og sker úr um ágreiningsmál innan klúbbsins á vikulegum spilakvöldum.   Haustið hefur verið annasamt hjá dómefndinni og hefur nefndin þurft að útkljá óvenju mörg deilumál þetta haustið.  Mikið hefur mætt á formanni dómnefndar, Magnúsi Halldórssyni, við þau verk.   Fyrir þá sem ekki þekkja Magnús er hér birt mynd af honum, svo menn geti auðveldlega fundið hann í hópi spilara á Strönd.  Myndina má sjá  hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar