Suðurlandsmótið í einmenning LOKAÚTKALL

miðvikudagur, 9. nóvember 2011

ATH, skráning er enn mjög lítil í þetta mót, eða 10 einstaklingar þegar þetta er skrifað. Ef þátttaka næst ekki í lágmark 16 manns verður mótið ekki haldið. 

Þetta er nýtt mót, sem verður árlegt ef vel tekst til. Mótið verður haldið laugardaginn 12. nóvember nk. kl. 10:00. Spilastaður verður líklega Tryggvaskáli, og spilandi keppnisstjóri verður Ólafur Steinason. Skráning í mótið er á þessari síðu, og verður lokað fyrir skráningu föstudaginn 11. nóvember kl. 12:00 á hádegi.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar