Bridgefélagi Rangæinga

fimmtudagur, 18. febrúar 2010

Nú styttist óðum í lok aðalsveitakeppni Bridgefélags Rangæinga.  Næstsíðasta kvöldið fór fram nú réttliðinn þriðjudag.  Þar áttust við þær sveitir sem voru í 1 og 2 sæti.  Í fyrstu virtist sem magnúsarnir hefðu loks mætt ofjörlum sínum þegar steinabræður  gáfu út 2000 kall (velkomnir í "Klúbb 2000") er þeir reyndu 6NTx (einhvern helling niður).  En augljóst er nú að úlfar reyndust í sauðagæru.  Þeir náðu skjótt vopnum sínum og kváðu við "með fótinn annan fer ég á burt".
Í lokinn varð 2000 kallinn sem dropi í haf.  Lokastaða: 21-9, Sigtryggur vann!  Nú hafa magnúsa-steinabræður 10 stiga á næstu sveit en þær tvær munu mætast í hreinum úrlistaleik næstkomandi þriðjudag.
Af tvímenning er það helst að þeir nafnar Magnús urðu hæstir eftir meðferð þeirra á meisturum síðustu ára (jafnvel áratuga).  Nánari úrslit má sjá hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar