Bridgefélag Selfoss: Helgi Grétar Helgason sigraði jólaeinmenninginn

föstudagur, 18. desember 2009

Helgi Grétar Helgason varð sigurvegari Jólaeinmenningsins 2009 eftir æsispennandi og jafna baráttu, með 271 stig. Í öðru sæti varð Gunnar Leifur Þórðarson með 263 stig og í þriðja sæti varð Brynjólfur Gestsson með 262 stig. Nánar má finna um úrslitin ásamt spilagjöf og úrslitum úr hverju spili á þessari síðu.

Nú er spilamennska í félaginu farin í jólafrí, en fyrsta mót eftir áramót verður HSK mótið í tvímenning, sem spilað verður fimmtudaginn 7. janúar. Að því loknu tekur við 4 kvölda aðaltvímenningur félagsins, sem kallast Sigfúsarmótið, til heiðurs Sigfúsi heitnum Þórðarsyni sem lést sl. vor. Hann gaf verðlaunin í þetta mót fyrir nokkrum árum síðan.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar