Sumarbridge á Akureyri

mánudagur, 25. maí 2009

Spilað verður á þriðjudögum kl. 19:30 í allt sumar í Lionssalnum, Skipagötu 14, 4. hæð.

Allir bridgespilarar eru boðnir hjartanlega velkomnir í léttan tvímenning.  Aðstoðað verður við myndun para ef þarf og kaffi á könnunni. Hér er upplagt tækifæri fyrir heimamenn og ferðalanga að grípa í spil yfir sumartímann.
Borðgjald er 800 kr. (500 kr. fyrir lífeyrisþega).
Sjáumst í sumarbridge!
Stjórn B.A.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar