Sveit Gylfa efst í Halldórsmóti

miðvikudagur, 12. mars 2008

Halldórsmótið, minningarmót um Halldór Helgason, einn af frumkvöðlum Bridgefélags Akureyrar hófst þriðjudaginn 11. mars. Mótið er þriggja kvölda sveitakeppni með board-a-match fyrirkomulagi, þ.e. blöndu af tvímennings- og impaútreikningi. Þetta keppnisform með stuttum leikjum býður uppá miklar sviftingar og ekkert skorti á það fyrsta kvöldið. Sveit Gylfa Pálssonar vann fjóra leiki af fimm og hlaut 85 stig (meðalskor 60). Í 2.-3. sæti með 65 stig eru sveit Stefáns Vilhjálmssonar, sem tókst að lækka flugið hjá Gylfa og félögum, og sveit Unu Sveinsdóttur.

Sunnudagskvöldið 16.3. verður spilaður eins kvölds tvímenningur í Skipagötu 14, 4. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar