Heilsuhornstvímenningur B.A.

miðvikudagur, 5. mars 2008

Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson unnu Heilsuhornstvímenning Bridgefélags Akureyrar með yfirburðum, hlutu +51. Hart var barist um næstu sæti en endanleg röð var þessi:
2. Valmar Väljaots - Hans Viggó Reisenhus +17
3. Hermann Huijbens - Haukur Jónsson - Stefán Vilhjálmsson +16
4. Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal +14
5. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +13
Heilsuhornið á Glerártorgi veitti verðlaun í formi vöruúttektar fyrir þrjú efstu sætin.

Næst á dagskrá hjá B.A. er Halldórsmótið, þriggja kvölda sveitakeppni með board-a-match fyrirkomulagi. Víðir Jónsson, keppnisstjóri, tekur við skráningum í síma 897 7628. Aðstoðað verður við myndun sveita.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar