Nýárstvímenningur B.A.

miðvikudagur, 3. janúar 2007
Þriðjudaginn 2. janúar fór fram eins kvölds tvímenningur hjá Bridgefélagi Akureyrar, með þáttöku 16 para, til að koma spilurum í gang eftir hátíðarnar. Nýársmeistarar 2007 urðu Sveinn og Haukur eftir góða lokasetu gegn Helga og Gylfa:
1. Sveinn Aðalgeirsson - Haukur Harðarson +50
2. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +36
3. Páll Þórsson - Frímann Stefánsson +31
4. Björn Þorláksson - Jón Björnsson +25
5. Pétur Guðjónsson - Jónas Róbertsson +15
Næsta þriðjudag hefst Akureyrarmótið í sveitakeppni og er það fimm kvöld. Pör, sveitir eða stakir spilarar skulu hafa samband sem fyrst við Víði í síma 8977628 og þá verður þessu púslað saman

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar