Helgi Bogason og Vignir Hauksson með 65,3% skor!

þriðjudagur, 11. apríl 2006

16 pör spiluðu Monrad Barómeter í Mánudagsklúbbnum. Helgi Bogason og Vignir Hauksson unnu sér inn gjafakörfu frá SS með glæsilegu skori, 65,3%. Jón Stefánsson og Magnús Sverrisson voru í 2. sæti með 56,4% og fengu gjafakort í kaffisölu BSÍ. Jóhann Sigurðarson fékk gjafakörfu frá SS og Guðjón Hauksson fékk kaffikort í úrdrætti.

Mánudagsklúbburinn spilar mánudaginn 2. í páskum og verða páskaegg meðal annars í verðlaun. Spilamennska byrjar kl. 19:00

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar