Reykjanesmót í sveitakeppni
18-19 febrúar 2017
Reglugerð
1.
Spiluð
er raðkeppni, allir við alla,
10 spila leikir og dregið
um töfluröð í tölvunni.
2.
Gefnar
eru 75 mínútur á hvern leik. Ef
leik er ekki
lokið á þeim tíma eru gefnar
5 mínútur til að ljúka honum.
Ef leik er
þá enn ekki
lokið eru viðkomandi sveit(ir) sektaðar samkvæmt
eftirafarndi:
·
0-5 mínútur
framyfir: ½ vinningsstig.
·
5-10 mínútur
framyfir 1 vinningsstig.
·
10-15 mínútur
framyfir 2 vinningsstig.
Tefjist
leikur lengur en 15 mínútur getur keppnisstjóri
beitt harðari refsingum. Telji
spilarar að andstæðingar þeirra noti óheyrilega langan tíma skulu
þeir gera
keppnisstjóra viðvart svo hann geti
fylgst með og gripið til
viðeigandi ráðstafana, þar með talið
að ógilda spil sem eftir
er að spila.
3.
Spilarar
skulu temja sér stundvísi við
upphaf hverrar umferðar. Mæti spilari 5 mínútum of seint skal sekta
um 0,5 vinningsstig og 0,5 fyrir hverjar
5 mínútur eftir það. Leikur telst
tapaður ef sveit mætir 25 mínútum og
seint.
4.
Allir
leikir reiknast í IMP-stigum og
vinningsstigum. Verði sveitir jafnar í sætum gildir Keppnisreglugerð
Bridgesambands Íslands liður 6, sem hljóðar
svo:
1.
Innbyrðis
viðureign(ir)
2.
IMP-skor innbyrðis viðureigna.
3.
Vinningsstig
gegn 5 efstu sveitum að þeim
sjálfum frátöldum.
4.
Nettó
IMP-stig.
5.
Fjöldi
unninna leikja.
6.
Hlutkesti
(hærra spil dregið)
5.
Sjö
efstu sveitir öðlast keppnisrétt í undanúrslitum Íslandsmóts í sveitakeppni 2017 að því tilskildu að
þær séu löglega
skipaðar og
spili ekki sem gestasveitir.
6.
Sveit
sem ekki spilar leik vegan forfalla annarrar sveitar fær eftirfarandi
hagstæðustu skor:
A.
12 stig
B.
Meðaltal
stiga sem
aðrar sveitir hafa náð gegn
sveitinni sem ekki mætir.
C.
Meðaltal
eigin stiga í spiluðum leikjum.
D.
Meðaltal
stiga sem
tvær næstu sveitir fyrir ofan
hana hafa unnið til gegn
sveitinni sem ekki mætti. Sé
sveitin í 2 sæti er eingöngu borið
saman við sveitina í fyrsta sæti. IMP-stig eru gefin sem lágmark þeirra IMP-stiga sem samsvara vinningsstigunum.
Forfallist sama sveit
í helmingi eða fleiri umferða telst hún fallin
úr keppni og fyrri árangur
hennar strikast út og aðrar
sveitir teljast hafa átt yfirsetu
gegn henni og hljóta 12 stig.
7.
Komi
upp ágreiningur við spilaborðið sker keppnisstjóri úr en aðilar máls
geta skotið niðurstöðu hans til dómnefndar. Skal það gert
áður en næsta umferð hefst eða
innan 10 mínútna frá lokum umferðar
sé um síðustu umferð dagsins að ræða.
8.
Ef
í ljós kemur að sveitarfélagar hafa setið eins
í báðum sölum skulu úrslit leiksins
verða 8-8. Ef það gerist oftar
en einu sinni fær sú sveit
0 stig úr þeim leik.
9.
Sú
sveit sem
talin er upp á undan skal
sitja í N-S í opnum sal og sú
sem talin er á eftir skal
setjast á undan.
10.
Strax eftir hverja umferð
skal sveitarforingi eða fulltrúi hans
bera úrslit leiksins saman við andstæðinginn sem og niðurstöðu tölvuútreiknings hjá keppnisstjóra.
11.
Öll neysla og
meðferð áfengis í spilasal á meðan á mótinu stendur er bönnuð.
12. Að öðru leyti er spilað eftir alþjóðalögum í keppnisbridge.
13. Til að geta orðið Reykjanesmeistari þarf sveit að vera skipuð 3/5 spilurum sem skráðir eru í bridgefélög á Reykjanessvæðinu.