Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Fréttir

29.8.2008

Hornafjörður - Bridge

Íþróttamótið Í formi ( 30 ára + ) verrður haldin á Hornafirði helgina 19-21.september n.k. og eru Bridge-arar sérstaklega hvattir til að koma og etja kappi við andstæðinga allstaðar af landinu.
Skráning er hafin á heimasíðu mótsins www.iformi.is og þar er hægt að finn allar nánari upplýsingar um mótið.

26.8.2008

NÝJAR BÆKUR eftir Guðm. P. Arnarson

(1) Standard töflur: "Orðabók" fyrir Standard-spilara. Ítarlegar sagntöflur (220) um þróun sagna eftir opnun á 1 í lit. Verð kr. 3.000.-
(2) Sveitakeppni: Sveitakeppnisleikur í 8 spila lotum (64 spil). Skýringar og stigagjöf. Hentar vel til að spila í heimahúsum. Verð kr. 2.500.- ( BSÍ selur spilagjöf).
Báðar bækurnar fást á skrifstofu BSÍ.

12.8.2008

KÍNA 2008

Stjórn BSÍ hefur ákveðið að senda 3 pör í opnum flokki til Kína 3-18 október n.k.
Þeir sem urðu fyrir valinu eru þeir : Jón Baldursson, Björn Eysteinsson PC, Sverrir Ármannsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sveinn R. Eiríksson og Hrannar Erlingsson.´

Í flokki undir 28 ára verða einnig send 3 pör og eru það þau: Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Kristinsson, Gunnar B. Helgason, Örvar Óskarsson, Gabríel Gíslason og Jóhann Sigurðarson

11.8.2008

Sjóðheit mótaskrá - Útgefið 11.ágúst

Hér til hliðar má sjá nýja mótaskrá og einnig með því að smella HÉR

Svæðaformenn minntir á að skila inn dagsetningum fyrir svæðamót til bridge@bridge.is

4.8.2008

Bikarkeppni 2008: Búið að draga í 4. umferð

Dregið var í 4. umferð í Bikarkeppni BSÍ 2008.

Stórleikur umferðarinnar er viðureign Omar Sharif og Eykt.

Heimasíða Bikarkeppni 2008


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Ekkert skráð

Skoða alla daga


Slóð:

Forsíða » Fréttir

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS