Fréttir
25.6.2008
Skrifstofa BSÍ verður lokuð vegna sumarleyfa frá 7.júlí - 11.ágúst
Ef óskað er eftir að spila Bikarleik í húsnæði BSÍ er hægt að hafa samband við Sólveigu
í síma 8990110
Búið er að draga í 3. umferð og hægt er að sjá dráttinn með því að smella hlekkinn að neðan:
Bikarkeppni 2008
24.6.2008
Eftirtaldir aðilar styrkja Íslenska landsliðið á Evrópumótið 2008
VBS Fjárfestingabanki
ICEBANK hf.
Sjá allt um mótið hér
Landsliðið opnum flokki endaði í 8 sæti á Evrópumótinu eftir að hafa verið í baráttunni um 6 efstu sætin allan tímann
Íslenska kvennaliðið endaði í 18 sæti af 25 liðum.
23.6.2008
Áfram Ísland
Evrópumót: 6 efstu sætin gefa rétt til að spila á Bermuda Bowl -heimsmeistarmótinu sem verður í Brasílíu í ágúst 2009
27. júní
Ísland - Tyrkland 25 - 4
Ísland - Rússland 10 - 20
Ísland - England 6 - 24
28.júní
Ísland - Frakkland 20 - 10
Landsliðið opnum flokki endaði í 8 sæti á Evrópumótinu sem var að ljúka núna rétt í þessu
Áfram Ísland
Íslenska kvennaliðið er í 18 sæti eftir 24 umferðir
27.júní
'island - Spánn 7 - 23
Ísland - Svíþjóð 16 - 14
Ísland - Írland 22 - 8
Sjá allt um mótið hér
RUNNING SCORE HÉR - Efst- running score here...Þarf stundum að ýta á F5
21.6.2008
Evrópumótið - Nýjustu fréttir
Strákarnir okkar sigldu af öryggi í lokaúrslitin. 9 efstu sveitirnar úr hvorum undanriðli fóru áfram og Ísland hafnaði í 3.-4. sæti í A-riðli.
Sjá allt um mótið hér
RUNNING SCORE HÉR - Efst- running score here...Þarf stundum að ýta á F5
Bötler
Lokastaðan í A-riðli:
| 1 | NETHERLANDS | 341 |
| 2 | ITALY | 339 |
| 3 | ICELAND | 323 |
| - | LATVIA | 323 |
| 5 | ISRAEL | 319 |
| 6 | DENMARK | 315 |
| 7 | TURKEY | 314 |
| 8 | CZECH REP. | 310 |
| 9 | ENGLAND | 301 |
| - | FINLAND | 301 |
| 11 | MONACO | 283 |
| 12 | GREECE | 270 |
| 13 | SWITZERLAND | 262 |
| 14 | SPAIN | 254 |
| 15 | LUXEMBOURG | 253 |
| 16 | CROATIA | 252 |
| 17 | SERBIA | 245 |
| 18 | LITHUANIA | 218 |
| - | SCOTLAND | 218 |
19.6.2008
EM - Kvennaflokkur
Leikir dagsins 22.júní
Ísland - Ítalía 11 - 19
Ísland - Holland 12 - 18
Ísland - Ungverjalad 8 - 22
12.6.2008
Evrópumót í Frakklandi
Evrópumótið í PAU í Píreneafjöllunum í Frakklandi hefst sunnudaginn 15.júní
Landsliðið í opna flokknum byrjar á því að leika við Spánverja kl.8:30
Hægt verður að fylgjast með mótinu hér
Landslið i opnum flokki eru þeir: Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson, Bjarni H. Einarsson, Steinar Jónsson, Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, fyrirliði er Björn Eysteinsson.
Landsliðið í kvennaflokknum hefur leik 19.júní og er liðið skipað þannig: Valgerður Kristjónsdóttir fyrirliði, Esther Jakobsdóttir, Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Hjördís Sigurjónsdóttir og Ragnheiður Nielsen. Þjálfari Kristján Blöndal.
Sýnt verður frá mótinu á Bridgebase
Áfram Ísland!
Eftirtaldir aðilar styrkja landslið Íslands á Evrópumótinu í bridge:![]()
10.6.2008
Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur 18.júní
Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 18.júní í Síðumúla 37. Fundurinn hefst kl. 17:30.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn hvattir til að mæta á fundinn og í sumarbridge eftir fund.
5.6.2008
Sumarbridge: 30 pör mættu til leiks 4. júní!!
Það var mikið fjör í Sumarbridge miðvikudaginn 4. júní. Þegar skráningu lauk, höfðu 30 pör skráð sig og var mikið af nýjum spilurum sem var sérstakt gleðiefni fyrir Íslensku bridge-hreyfinguna!
Það hefur sjaldan verið jafn gaman að detta inn í eitt kvöld í Sumarbridge því allir voru brosandi og ánægðir hvort sem að spilmennskan gekk upp eða ekki!
Bestum árangri náðu Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Kristinsson með 62,1% skor. Hjámar Pálsson og Jörundur Þórðarson voru í 2. sæti með 61,7%
Önnur úrslit má sjá á heimasíðu Sumarbridge 2008 sem og bronsstiga stöðuna eftir 4. júní.
Heimasíða Sumarbridge 2008
1.6.2008
Landsleikur við Dani
Sjötta lotan í landskeppni Íslands og Danmerkur var Íslendingum í hag. Þeir unnu 19-11 og stórsigur 25-3. Lokastaðan í viðureigninni fór því 191-165 Íslendingum í hag.
Ísland - Danmörk Ísland - Danmörk
1. 19-11 20-10
2. 5-25 3 -25
3. 21-9 10-20
4. 19-11 19-11
5. 21-9 10-20
6. 19-11 25-3
Lokastaða: 191-165 fyrir Ísland. Góður dagur í bridge og handbolta :-)













