Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki Bridgesambands Íslands - Fara á forsíðu

Fréttir

30.12.2006

Jólamót BR og SPRON

Minningarmót Harðar Þórðarsonar.

Sigurvegarar Jólamóts BR og SPRON voru Sverrir Krsitinsson jr. og Páll Valdimarsson, í öðru sæti voru sigurvegararnir frá því í fyrra Helgi G. Helgason og Kristján Már Gunnarsson, og í þriðja sæti urðu Páll Þór Bergsson og Magnús Ólafsson.

Sjá lokastöðu

19.12.2006

Jólamót BH og Sparisjóðs Hafnarfjarðar

Jólamót BH og Sparisjóðs Hafnarfjarðar verður haldið fimmtudaginn 28. desember og hefst kl 17:00.

Spilað að Flatahrauni 3 Hafnarfirði, Hraunsel.

Glæsileg verðlaun að venju.

Upplýsingar og skráning í símum 899-7590 (Hafþór),  565-3050 (Erla) og  555-1921 (Atli)

18.12.2006

JÓLAMÓTIN MILLI JÓLA OG NÝÁRS - Síðasti séns að skrá sig í mótin 30.des!

Fjögur bridgefélög á landinu halda jólamót á milli jóla og nýárs sem jafnan hafa verið vel sótt.

Þrjú þeirra verða með mótið laugardaginn 30. desember.

B.Akureyrar - Glitnismótið í tvímenningi en það hefst kl 10:00 og verður 50-60 spil. Keppnisgjald er 2000kr. á manninn og eru glæsileg flugeldaverðlaun í boði. Stefán Vilhjálmsson gefur upplýsingar í síma 898 4475.

B.Blönduóss - Þorsteinsmótið Patton sveitakeppni þar sem Stefán Berndsen gefur upplýsingar í síma 452 4531.

B.Reykjavíkur -  Minningarmót Harðar Þórðarsonar að Síðumúla 37, upplýsingar um mótið á skrifstofu BSÍ 587 9360. Ath, hefst kl. 11:00 - Enn nokkur sæti laus, skráning verður stöðvuð í 56 pörum

Fimmtudaginn 28. desember ætlar B.Hafnarfjarðar að vera með jólamót Sparisjóðs Hafnarfjarðar og B.Hafnarfjarðar að Flatahrauni 3 í Hafnarfirði. Hefst kl. 17:00.Upplýsingar og skráning í símum 899-7590 (Hafþór), 565-3050 (Erla) og 555-1921 (Atli)

12.12.2006

SIGUR ÍSLENSKRAR SVEITAR Í SVÍÞJÓÐ

Sveit skipuð íslenskum spilurum vann öruggan sigur á árlegu alþjóðlegu móti í Uppsala í Svíþjóð sem spilað var helgina 9.-10. desember. Spilarar í sveitinni voru Ísak Örn Sigurðsson, Ómar Olgeirsson, Stefán Jónsson og Steinar Jónsson.

Sjá nánar hér    (Resultat UBS-Lagguld og UBS-Lagguld IAF)

Uppsala 2006-Þrír Frakkar
Sigurvegarar í Svíþjóð:
Ísak Örn Sigurðsson, Stefán Jónsson, Ómar Olgeirsson og Steinar Jónsson

4.12.2006

ÍSLANDSMÓT Í SAGNKEPPNI 2006

Íslandsmót í sagnkeppni var haldið fyrsta sinni sunnudaginn 3. desember og hafði þar landsliðsparið, Sigurbjörn Haraldsson og Bjarni H. Einarsson nauman sigur með 75,9% skori.

2.12.2006

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson fyrstu Íslandsmeistarar í Butlertvímenning

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson eru verðugir Íslandsmeistarar í Butlertvímenning 2006. Þeir leiddu mest allt mótið og þótt að þeir gæfu aðeins eftir í lokin, var munurinn 20 impar eftir að 55 spil höfðu verið spiluð. Annað sætið kom í hlut Ómars Freys Ómarssonar og Örlygs Örlygssonar og þriðja sætið nýkrýndra Íslandsmeistara í Parasveitakeppni 2006, Hrund Einarsdóttur og Vilhjálms Sigurðssonar jr.

Heimasíða Íslandsmótsins í Butler 2006

Íslandsmeistarar í bötlertví 2006
Íslandsmeistarar í bötlertvímenningi 2006: Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson
ásamt forseta BSÍ Guðmundi Baldurssyni.


Viðburðadagatal


Hverjir spila í dag

Ekkert skráð

Skoða alla daga


Slóð:

Forsíða » Fréttir

Myndir


Auglýsing

ICELAND EXPRESS