Sveit Högna Högna Friðþjófssonar varð um helgina Reykjanesmeistari í sveitakeppni.
Með Högna spiluðu Einar Sigurðsson, Friðþjófur Einarsson og Guðbrandur Sigurbergsson.
Lokastaðan varð:
Högni Friðþjófsson 124
Ingvaldur Gústafsson 113
Sparisjóður Keflavíkur 112
Re/Max - Lind 107
Hrund Einarsdóttir 104
Hulda Hjálmarsdóttir 98
Erla Sigurjónsdóttir 96
Hjálmar Pálsson 85
Fjórar efstu sveitirnar unnu sér jafnframt rétt til þátttöku í undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni.
Bridgedeild Breiðfirðinga ,Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 18:30.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.